top of page

Um TSG

 

TSG á Ísland kennir og miðlar kennslu Torkom Saraydarian, sem byggir á því besta og
fallegasta í helgri menningu heimsins.

 

TSG – stendur fyrir Torkom Saraydarian og Gita.

TSG á Íslandi er agnarlítill angi sprottinn upp af kennslu þeirra Torkoms Saraydarian og Gitu Saraydarian.


Við bjóðum þig hjartanlega velkomin í samfélag leitar og lærdóms.

 

 

 

Screenshot 2026-04-11 at 16.35.48.png
Torkom Saraydarian

Torkom (1917-1997) fæddist í Sivas í Tyrklandi. Frá barnsaldri hlaut hann þjálfun í Kennslunni – Ævarandi Visku, undir leiðsögn föður síns. Hann flutti til Bandaríkjanna árið 1959 þá fjölskyldufaðir með fjögur börn. Torkom helgaði líf sitt samferðamönnum sínum, lét velferð þeirra sig ávallt varða og leitaðist við að auðga í þeim hugsun sem  mætti hjálpa þeim að leggja grunn að framtíð sinni á. Hann lagði ávallt áherslu á sjö meginþætti: Fegurð, Góðvild, Réttlæti, Gleði, Frelsi, Erfiði í átt að Fullkomnun og Óeigingjarna Þjónustu.

Torkom skrifaði yfir 150 bækur og skildi eftir sig ríkulega arfleifð fyrirlestra og tónlistar sem bera ást hans á heimspeki, hærri lögmálum og gildum allra trúarbragða glöggt vitni.

Verk hans tengjast H.P Blavatsky, brautryðjanda og stofnanda  Guðspekifélagsins, Helenu Roerich og Agni Yoga-kennslunni sem hún kom á fót og Alice Bailey, stofnanda Arcane-skólans. Öll eru þau kennd við Kennsluna - Ævarandi Visku.

Screenshot 2026-04-11 at 16.35.00.png
Gita Saraydarian

Gita Saraydarian er dóttir Torkoms og stofnaði bókaútgáfu TSG Foundation árið 1987 til að gefa út bækur og annað efni frá Torkom. Síðan þá hefur umfangið vaxið til muna. Bygging hefur bæst við og rekstur á fallegu andlegu námssetri í Arizona Bandaríkjunum – TSG Center for Spititual Development. Þar er kennd hugleiðsla og andleg þjálfun auk ýmissa námskeiða sem haldin eru reglulega er viðkoma vexti mannssálarinnar. Þá rekur hún einnig TSG Háskóla þar sem nemendur allsstaðar að úr heiminum leita sér þekkingar. Hún er um það bil að ljúka við að gefa út arfleifðina sem Torkom skildi eftir sig. 

daggaheimasida.png
Dagmar J. Eiríksdóttir

Dagmar J Eiríksdóttir er stofnandi TSG á Íslandi og nemandi Gitu Saraydarian til langs tíma. Hún hefur frá árinu 2015 verið með mánaðarlegar hugleiðslur í kringum fullt tungl og haldið námskeið í gleði og heilun sem unnin eru upp úr efni frá Gitu og bók frá Torkom sem ber sama nafn. Nú hefur sú bók verið þýdd yfir á íslensku.

©2025 TSG Ísland

bottom of page