Hugleiðslur
Hugleiðsla á hugarfræ
Hugleiðsla á hugarfræ er til þess fallin að lyfta hugsun þinni upp á sálarsvið.
Í þessari aðferð:
-
velur þú ákveðið „fræ“, til dæmis orð, setningu, hugtak eða mynd
-
leyfir innri merkingu „fræsins“ að opnast fyrir þér, svo þú öðlist dýpri skilning
-
tengir síðan þann skilning við daglegt líf þitt
Með þessum hætti byggir þú brú að lótusnum á hærra hugarsviði.
-
Tilvist Guðs sé eilíf, almáttug, alnálæg og alvitur.
-
Sálin sé ódauðleg.
-
Jarðvistir sálarinnar séu margendurteknar.
-
Lögmál orsaka og afleiðinga sé óhagganlegt andlegt lögmál og sívirkt.
-
Andleg og trúarleg kennsla, hefðir og siðvenjur komi frá einni og sömu uppsprettu og finni sér mismunandi farveg í samræmi við þarfir og aðstæður manna.
-
Margir miklir Meistarar hafi komið í gegnum aldirnar og veitt mannkyninu trúarlega og andlega leiðsögn.
-
Þeir hafi borið ýmis nöfn, svo sem Kristur, Búdda, Meistari, Vitringu, Spámaður, Avatar og Postuli.
-
Kristur sé hinn mikli kennari plánetunnar okkar. Kennsla hans miði að því að sameina allt mannkynið og tengja okkur við Hærri Heima.
-
Leiðin að hinum Heilögu liggi um bæn, hugleiðslu og ákall.
-
Meðvituð og markviss fræhugleiðsla sé grunnurinn að þróun sálarinnar.
Við trúum að
Álallið Mikla
Frá punkti Ljóss í Huga Guðs
Lát ljós streyma inn í hugi mannanna,
Lát Ljós streyma niður á Jörðina.
Frá punkti Ástar í Hjarta Guðs
Lát ást streyma inn í hjörtu mannanna,
Komi Kristur aftur fram á Jörðu hér.
Frá orkustöðinni sem veit Vilja Guðs
Lát tilgang leiða lítinn vilja mannanna,
Tilgang þann sem Meistararnir vita og þjóna.
Frá orkustöðinni sem mannkyn kölluð er
Lát Áform Ástar og Ljóss framkvæmast,
Og megi það innsigla dyr þess illa.
Lát Ljós og Ást og Mátt endurreisa Áformið á Jörð.
Ákallið hér að ofan tilheyrir ekki einni manneskju né hópi fólks, heldur öllu mannkyni. Fegurð þess og styrkur liggur í einfaldleika þess og í því að það tjáir ákveðin grundvallarsannindi sem allt fólk á meðfæddan og eðlislægan hátt veitir viðtöku. Sannindin um að Vitund sé að baki allrar ytri umgjarðar; sem við tengjum óljóst við og köllum Guð. Sannindin um að Ást sé hreyfiafl alheimsins og er að baki allrar ytri ásýndar. Sannindin um að mikill einstaklingur hafi komið til jarðar, kallaður Kristur af kristnum mönnum og birt þá Ást svo að við mættum öll skilja hvað ást er. Sannindin um að bæði ást og vitsmunir séu birtingarmynd þess sem kallað er Vilji Guðs og að lokum þau augljósu sannindin, að það sé aðeins í gegnum mannkynið sem hið guðlega Áform framkvæmist.
Alice A. Bailey