top of page

Kennslan

Ævarandi Viska, eða einfaldlega Kennslan, er sameiginlegur arfur andlegra, trúarlegra og heimspekilegra kenninga frá konum og körlum úr öllum menningarheimum. Hún leggur grunn að lífstilgangi og heiðarleika og er leiðsögn fyrir okkur til lifað í sátt. Hún myndar undirstöðu að hamingjuríku og gleðilegu lífi.

653703803_1350167347138568_7659135083100306455_n.jpg
655920891_1355243069964329_5811973084286258840_n.jpg

Kennslan er ekki aðeins Viska gefin og numin, hún er einnig sameiginlegur sjóður þekkingar, reynslu og vísdóms sem safnast hefur saman hjá mannkyninu sjálfu frá upphafi mannkynssögunnar. Hún er sameiginlegur fjársjóður og viska mannlegrar sálar. Kennslan tilheyrir ekki sérvöldum hópum eða þjóðum, heldur er hún öllum gefin, er arfleifð allra þjóða og hún spannar öll svið: stjórnmál, fræðslu, listir, vísindi, hagfræði, trúarbrögð og samskipti. Eitt stærsta einkenni Kennslunnar er að hún sameinar, er aðgengileg og ætluð öllum sama hverrar trúar þeir eru. Hún er vegferð að samhljómi og bræðralagi, hún er fimm arma stjarna: Fegurðar, Góðvildar, Réttlætis, Gleði og Frelsis

©2025 TSG Ísland

bottom of page